17.03.06 - 18:25
Magnús Már Einarsson
Gravesen í Fylki (Staðfest) (Uppfært)
Peter Gravesen, bróðir Thomas Gravesen

Mynd: http://www.havensupport.dk/

Mynd: http://www.havensupport.dk/
Peter Gravesen hefur gert tveggja ára samning við Fylki en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá liðinu nú undir kvöld. Gravesen þessi er marksækinn vinstrifótarleikmaður sem spilar á miðjunni en hann kemur frá Herfølge í heimalandinu og keypti Fylkir hann frá danska liðinu.
Peter sem er 27 ára gamall er bróðir Thomas Gravesen harðjaxlsins á miðjunni hjá Real Madrid. Líkt og bróðir sinn er Peter þekktur fyrir mikla baráttu samkvæmt stuðnignsmanna síðu Herfølge en hann kom til liðsins frá Vejle árið 2004.
Von er á Peter til Fylkis fyrir lok mars og fer hann með liðinu í fyrirhugaða æfingaferð til Portugal í byrjun apríl.
Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis var að vonum sáttur með liðsstyrkinn en hann sagði við Fótbolti.net aðspurður hvort hann væri að renna blint í sjóinn með leikmanninn: ,,Ég er búinn að sjá til hans. Ég fór til Danmerkur í haust og skoðaði leikmenn. Þó ég hafi kannski ekki alveg gert mér vonir um að fá þetta þá gekk það upp. Þetta er sterkur leikmaður og vinstrifótar leikmaður sem við erum ekki mjög ríkir af."
Eins og fyrr segir er Thomas Gravesen bróðir Peter og aðspurður hvort þeir væru svipaðir á velli sagði Leifur: ,,Þetta er mikill keppnismaður en hann er með aðeins meira hár en bróðir sinn," sagði Leifur í léttum tóni og aðspurður sagði hann að nú væri spurning hvort að Thomas yrði ekki næstur í röðinni.
Fylkismenn hafa einnig haft Englending frá Cardiff að nafni Tariq Khalil á reynslu í vikunni og að sögn Leifs verður tekinn ákvörðun um framhaldið með hann þegar hann mun snúa til síns heima á sunnudaginn. Hann þarf hins vegar að sýna góða takta því Leifur ætlar ekki að semja við hann að óþörfu. ,,Þeir leikmenn sem við fáum þurfa að vera verulega betri en þeir sem eru fyrir því við ætlum ekki að hafa erlendan leikmann sem er jafngóður og ungur leikmaður sem við höfum. Þá látum við frekar unga og efnilega stráka spila," sagði Leifur að lokum við Fótbolti.net