17.03.06 - 22:03
Magnús Már Einarsson
Andri Steinn í Grindavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Miðjumaðurinn Andri Steinn Birgisson hefur ákveðið að ganga til liðs við Grindvíkinga en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net nú í kvöld. Andri Steinn hætti hjá Víkingi R. á dögunum eins og við greindum frá og ætlar hann nú að æfa með Grindavík í mánuð og sjá hvort bakmeiðsli sem hann varð fyrir fyrr í vetur muni hrjá hann eða ekki.
Andri meiddist í bílslysi á Englandi þar sem hann var til reynslu hjá Notts County en að hans sögn er bakið hins vegar fínt núna og ef það verður svo eftir mánuð þá mun hann leika með Grindvíkingum í sumar.
Eitt lið úr fyrstu deild vildi einnig fá Andra en að hans sögn valdi hann Grindavík aðallega vegna Sigurðar Jónssonar þjálfara liðsins sem fékk leikmanninn einmitt í Víking úr Fram síðastliðið sumar.
Hinn 22 ára gamli Andri Steinn á 22 leiki að baki í efstu deild en hann skoraði tvö mörk í níu leikjum þegar að Víkingur komst upp úr fyrstu deildinni síðastliðið sumar.