Fotbolti.net
17.03.07 - 13:22
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Everton fær ungan framherja frá Swindon (Staðfest)

Lucas Jutkiewicz á sprettinum í leik með Swindon

Lucas Jutkiewicz á sprettinum í leik með Swindon

Canon

Mynd: Getty Images

Everton hafa fengið til sín sautján ára gamlan pólskan sóknarmann að nafni Lucas Jutkiewicz frá Swindon.
Jutkiewicz hefur byrjað átta leiki fyrir ‘The Robins’ á þessu tímabili en hann hefur þó greinilega gert nóg til þess að ‘The Toffees’ fá hann til sín.

Ekki var gefin upp upphæðin sem Everton þurfti að borga fyrir leikmanninn sem skrifaði undir fjögurra ára samning á Goodison Park.

Þessi fyrrum sóknarmaður Southampton mun hins vegar klára tímabilið með Swndon og vonast hann til þess að hjálpa þeim að komast upp úr ensku fjórðu deildinni (League Two) í vor.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.