17.03.08 - 10:53
Magnús Már Einarsson
Árni Gautur til Suður-Afríku (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Árni Gautur Arason hefur gert samning við suður-afríska liðið Thanda Royal Zulu og mun hann leika með liðinu út tímabilið þar í landi.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en Árni Gautur fer til Suður-Afríku á morgun og leikur væntanlega sinn fyrsta leik með Thanda Roayl þegar að liðið mætir Orlando Pirates.
Árni Gautur, sem er 33 ára gamall, yfirgaf Valerenga eftir síðasta tímabil og hefur verið án félags þar til nú.
Árni var á mála hjá ÍA á sínum yngri árum áður en hann hélt í atvinnumennsku þar sem hann hefur leikið með Rosenborg, Manchester City og nú síðast Valerenga.
Thanda Royal er í 14.sæti af 16 liðum í suður-afrísku deildinni þegar að átta umferðir eru eftir af deildinni en henni lýkur í maí.

Heimild: Morgunblaðið