Þær sögusagnir að Jóhann Berg Guðmundsson gangi líklega í raðir Breiðabliks verða sífellt háværari. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru auknar líkur á því að Jóhann haldi heim í Kópavoginn.
Fjallað var um það í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag að Breiðablik væri búið að ræða við hann.
Fjallað var um það í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag að Breiðablik væri búið að ræða við hann.
„Það yrði geðveikt fyrir deildina að fá hann og Blikar yrðu líklegir eins og Víkingar ef hann kæmi, hann er bara þannig leikbreytir. Þetta yrði tryllt en ég á erfitt samt með að sjá þetta gerast," sagði Tómas Þór Þórðarson í þættinum.
Víkingur og Breiðablik mætast í upphafsleik Bestu deildarinnar þann 10. apríl og fótboltaáhugafólk gæti fengið vatn í munninn við þá tilhugsun að þar mætist mögulega Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg.
Er án félags
Jóhann Berg, sem er 35 ára, rifti í febrúar samningi sínum við Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hann er einn af ástsælustu landsliðsmönnum í sögu íslenska boltans, með yfir 100 landsleiki, og var lykilmaður í gullkynslóðinni.
Hann fór í gegnum yngri flokkana hjá Breiðabliki ásamt því að spila með unglingaliðum Chelsea og Fulham. Hann sprakk síðan út með meistaraflokki Breiðabliks árið 2008 og fór í kjölfarið til AZ Alkmaar í Hollandi.
Þaðan fór hann til Charlton þar sem hann lék tvö tímabil áður en hann hélt til Burnley þar sem hann lék alls tíu tímabil og spilaði yfir 200 leiki.
Yrði draumur að fá hann
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, sagði við íþróttafréttamanninn Helga Fannar Sigurðsson í Íþróttavikunni að það yrði draumur að fá Jóhann Berg til félagsins.
„Það væri draumur. Á milli þess sem maður var að skoða sérsveitina og hermennina var maður kannski aðeins að taka kaffi með Jóa og daðra við hann,“ sagði Höskuldur kíminn í þættinum en hann og Jóhann Berg voru saman í landsliðsferð í Mexíkó nýlega.
Athugasemdir


