Fotbolti.net
17.04.05 - 11:59
Elvar Geir Magnússon

Dwight Yorke til Sydney (Staðfest)

Dwight Yorke til Sydney (Staðfest)
Canon
Fótboltafélagið Sydney FC sem leikur í A-deildinni í Ástralíu tilkynnti í morgun að félagið væri búið að ganga frá samningi við sóknarmanninn Dwight Yorke. Walter Bugno stjórnarformaður Sydney segir að Yorke hafi neitað stóru tilboði frá liði í Katar og ákveðið að fara frekar til Ástralíu.
"Sydney fékk Yorke á endanum en ég var orðinn ansi stressaður, tilboðið sem félagið í Katar bauð honum var fjórum sinnum hærra en við gátum boðið." sagði Bugno.

Yorke var einn allra besti sóknarmaður ensku deildarinnar þegar hann lék með Manchester United. Hann var í herbúðum Birmingham en gerði lítið annað en að verma varamannabekkinn. Meiðeigandi Birmingham sakaði leikmanninn um netnaðarleysi og sagði hann ekki leggja hart að sér.

A-deildin í Ástralíu er ný atvinnumannadeild þar í landi sem telur átta lið. Boltinn þar byrjar að rúlla í ágúst og hefur Sydney ráðið Pierre Littbarski, fyrrum heimsmeistara með Þýskalandi, sem þjálfari.

Yorke, sem einnig hefur leikið fyrir Aston Villa ogBlackburn Rovers, mun koma til Sydne í júlí, mánuði áður en Sydney á fyrsta leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.