Fotbolti.net
17.04.07 - 15:52
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Juan Pablo Angel til New York Red Bulls (Staðfest)

Angel í leik með Aston Villa

Angel í leik með Aston Villa

Canon

Mynd: Getty Images

Kólumbíski sóknarmaðurinn Juan Pablo Angel hefur gengið til liðs við bandaríska félagið New York Red Bulls en þeir spila í MLS-deildinni, sömu deild og David Beckham og félagar í Los Angeles Galaxy.
Angel átti eitt ár eftir af samningnum sínum við Aston Villa en stjórinn Martin O’Neill hafði áður sagt að hann ætlaði ekki að koma í veg fyrir brottför leikmannsins.

Sakmvæmt orðrómum mun bandaríska félagið borga Angel 40 þúsund pund, sömu laun og hann myndi fá hjá Villa á síðasta ári sínu á Villa Park.

Angel sem hefur verið hjá Villa í sex og hálft ár hefur fengið fá tækifæri í liði Martin O'Neill undanfarið eftir að John Carew og Ashley Young komu til félagsins í janúar og þá hefur ungstirnið Gabriel Agbonlahor einnig verið að spila vel á þessu tímabili.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.