Fotbolti.net
17.04.08 - 12:02
Magnús Már Einarsson

Ögmundur Ólafsson í HK (Staðfest)

Gunnar Guðmundsson þjálfari HK.

Gunnar Guðmundsson þjálfari HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

HK hefur fengið markvörðinn Ögmund Ólafsson til liðs við sig frá Stjörnunni.
Ögmundur lék æfingaleik með HK gegn Gróttu á dögunum og hann hefur einnig æft með liðinu að undanförnu.

,,Við þurfum á tveimur góðum markmönnum að halda og Ögmundur er klárlega góður kostur fyrir okkur. Okkur líst mjög vel á hann," sagði Gunnar Guðmundsson þjálfari HK við Fótbolta.net í síðustu viku þegar hann var spurður út í það hvort Ögmundur væri á leið til félagsins.

Nú hefur leikmaðurinn fengið félagaskipti en Ögmundur lék átta leiki með Stjörnunni síðastliðið sumar. Þessi 23 ára gamli leikmaður kom einnig við sögu hjá liðinu 2005 og 2006.

Ögmundur hefur þegar fengið leikheimild með HK og hann getur því verið í leikmannahópi liðsins gegn Breiðablik í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.