17.05.05 - 18:03
Magnús Már Einarsson
Berger til Aston Villa (Staðfest)

Berger fagnar marki með Zivkovic og Yakubu.


Berger fagnar marki með Zivkovic og Yakubu.

Patrik Berger hefur gert tveggja ára samning við Aston Villa og mun þessi tékkneski miðjumaður ganga til liðs við sitt nýja félag þann 1.júlí næstkomandi en þetta kom fram á heimasíðu liðsins nú í kvöld.
Eins og við greindum frá í morgun þá var nokkuð ljóst að þessi félagaskipti hjá Berger væru að ganga í gegn en hann hefur skorað 36 mörk í 156 leikjum í byrjunarliði í ensku úrvalsdeildinni.
Berger sem er 31 árs kom til Portsmouth frá Liverpool fyrir tveimur árum en hann kom til síðarnefnda liðsins frá Borussia Dortmund fyrir 3,25 milljónir punda árið 1996.
Berger sem er 31 árs kom til Portsmouth frá Liverpool fyrir tveimur árum en hann kom til síðarnefnda liðsins frá Borussia Dortmund fyrir 3,25 milljónir punda árið 1996.
