Fotbolti.net
17.05.05 - 22:35
Magnús Már Einarsson

Bo Henriksen í Val (Staðfest)

Bo Henriksen á þeim tíma er hann lék með Kidderminster Harriers.

Bo Henriksen á þeim tíma er hann lék með Kidderminster Harriers.

Canon
Valur hefur samið við danska framherjann Bo Henriksen um að hann leiki með liðinu út leiktíðina. Henriksen sem er fæddur árið 1975 er víðförull leikmaður en seinast lék hann með B93 í Danmörku og skoraði hann 3 mörk í 9 leikjum fyrir liðið.
Henriksen lék með Odense 1995-1997 og skoraði þar 11 mörk í 33 leikjum. Þaðan fór hann til Herfølge og vann meðal annars dönsku Superliguna með þeim árið 2000. Hjá Herfølge skoraði Henriksen 14 mörk í 69 leikjum en hann lék meðal annars í Evrópukeppninni með liðinu þar sem mótherjarnir voru meðal annars Real Madrid, Glasgow Rangers og Parma.

Árið 2001 fékk gamla Liverpoolkempan Jan Mölby hann til liðs við Kidderminster Harriers og þar vann Henriksen hug og hjörtu aðdáenda liðsins með því að skora 30 mörk í 94 leikjum. Henriksen lék með Bristol frá 2004 og þangað til að hann fór til B93 fyrir skömmu.

Að sögn Barkar Edvardssonar formanns knattspyrnudeildar Valsara þá virkar Henriksen sem geðþekkur náungi en hann kom til landsins í dag og tók þátt í æfingu hjá Val í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.