17.05.06 - 14:13
Magnús Már Einarsson
Favalli frá Inter til AC Milan (Staðfest)

Favalli í leik gegn AC Milan.

Mynd: Getty Images

Favalli í leik gegn AC Milan.

Mynd: Getty Images
AC Milan hefur fengið varnarmanninn Giuseppe Favalli frá nágrönnum sínum og erkifjendum í Inter en hann kemur á frjálsri sölu. Favalli sem er 34 ára gamall hefur gert tveggja ára samning samkvæmt yfirlýsingu sem kom frá AC Milan í dag.
Þessi fyrrum leikmaður Lazio á átta landsleiki að baki en hann mun hjálpa AC Milan í vinstri bakvarðarstöðunni þar sem liðið hefur átt í smá vandræðum þar sem fyrirliðinn Paolo Maldini hefur átt við hnémeiðsli að stríða.
Það þótti saga til næsta bæjar þegar að leikmenn fóru á milli AC Milan og Inter en í leikmannahópi fyrrnefnda liðsins eru nú fjórir leikmenn sem komu frá Inter. Það eru miðjumennirnir Clarence Seedorf og Andrea Pirlo, varnarmaðurinn Dario Simic auk Favalli.