Fotbolti.net
17.05.07 - 16:29
Andri Fannar Stefánsson

Bolton kaupir Zoltan Harsanyi (Staðfest)

Bolton kaupir Zoltan Harsanyi (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sammy Lee sem á dögunum var ráðinn stjóri Bolton er búinn að ganga frá sínum fyrstu kaupum með því að fá Zoltan Harsanyi algjörlega til félagsins en hann var á lánssamningi.
Zoltan sem er slóvaskur U21 árs landsliðsmaður kom til klúbbsins í janúar og hefur skrifað undir þriggja ára samning. Þessi 19 ára leikmaður hefur skorað þrjú mörk í sjö leikjum fyrir varalið Bolton.

,,Mitt persónulega markmið fyrir næsta tímabil er að komast í byrjunarlið aðalliðsins," sagði hann við heimasíðu Bolton.

Hann kom til Bolton eins og áður segir í janúar og þá frá FC Senec ásamt landa sínum og varnarmanni, Lubomir Michalik, og náði hann að brjóta sér leið inn í aðallið Bolton rétt áður en tímabilinu lauk.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.