Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 17. maí 2022 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Úkraína sigraði gegn Empoli
Mynd: EPA

Empoli 1 - 3 Úkraína
0-1 Roman Yaremchuk ('26)
1-1 Andrea La Mantia ('45)
1-2 Oleksandr Karavaev ('46)
1-3 Oleksandr Pikhalyonok ('53)


Úkraínska landsliðið spilaði sinn annan æfingaleik á nokkrum dögum þegar liðið heimsótti Empoli til Ítalíu í dag.

Úkraína er að hita upp fyrir umspilsleik til að komast á HM í Katar í desember og neyðist til að spila við félagslið utan landsliðsglugga FIFA vegna innrásar Rússa.

Úkraína, sem lagði Borussia Mönchengladbach að velli á dögunum, hafði betur gegn Empoli í dag eftir að staðan var jöfn í hálfleik.

Roman Yaremchuk, Oleksandr Karavaev og Oleksandr Pikhalyonok gerðu mörk Úkraínu í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner