Tímamót hjá Lárusi Orra: Mikill uppgangur hjá félaginu
Auglýsing

Lárus Orri fagnar eins árs afmæli sem þjálfari Skagamanna á sunnudaginn kemur

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

ÍA fengu Val í heimsókn upp á Skipaskaga í leik sem ÍA hafði góð tök á og eitt mark dugði til sigurs. Sanngjarn sigur þegar uppi var staðið.
Þetta hafðist og er Lárus Orri sáttur við sína menn?
„Já ég var mjög ánægður með þá í dag og þetta meira en hafðist og var bara nokkuð öruggur sigur þrátt fyrir að þetta hafi bara farið 1-0. Mér leið bara nokkuð vel allan tímann. Fyrstu 10-15 mínúturnar voru við að finna út úr því hvernig þeir ( Valur ) spiluðu, við vissum í raun ekki fyrir leikinn hvaða Valslið við værum að fá. Það tók smá tíma að finna út úr pressunni hjá þeim en eftir það var bara eitt lið á vellinum."

Lestu um leikinn: ÍA 1 - 0 Valur
Sóknarleikur Valsmanna sá aldrei til sólar í þessum leik og verður að hrósa varnarleik Skagamanna í þessum leik og sérstaklega þegar horft er til þess að Valur átti einungis eitt skot á mark í leiknum.
Er Lárus Orri ekki sáttur með varnarleikinn í kvöld?
„Já mjög sáttur við hann og sérstaklega þegar við þurfum að gera breytingu eftir eina mínutu í vörninni hjá okkur. Við missum Baldvin út af og Böddi fer í hafsentinn og spilar mjög vel eins og Böddi er búinn að vera í sumar hvort sem það er hafsent eða bakvörður."
Eftir erfiða byrjun í upphafi móts hefur stigasöfnunin gengið vel hjá Skagamönnum en liðið hefur hirt 10 stig af 12 mögulegum í síðustu fjórum deildarleikjum.
Er Lárus sammála því að liðið er að spila betur?
„Sko úrslitin hafa verið að koma núna en það eru leikir þarna innan um sem við vorum að spila mjög vel eins og Blikar úti, KA hérna heima og við fengum bara eitt stig úr þessum tveimur leikjum en vorum að spila mjög vel. En það er mjög sætt að stigin séu farin að koma."
Lárus Orri Sigurðsson tók við ÍA á miðju tímabili í fyrra þegar Jón Þór Hauksson var látinn taka poka sinn fyrir bráðum ári síðan eða þann 21. júní 2025 til að vera nákvæmur.
„Það eru smá tímamót hjá mér núna, ég er að detta núna í eitt ár núna í vikunni. Þetta er búið að vera mjög áhugaverður tími og mjög gaman að fá að taka þátt í þessu. Það er mikill uppgangur í félaginu og félagið stefnir í eina átt sem er að festa sig í sessi í efri hlutanum og baráttu um Evrópusæti."
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.