Fotbolti.net
16.06.26 - 23:20
Alexander Tonini

Viktor Jóns: Tryggvi Hrafn komdu heim

Auglýsing
Viktor Jónsson skoraði eina markið hér í kvöld

Viktor Jónsson skoraði eina markið hér í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Jónsson framherji Skagamanna tryggði liði sínu 1-0 sigur gegn Val þegar hann skoraði eina mark leiksins á 40. mínútu og gott gengi ÍA heldur áfram sem hefur hirt 10 stig í síðustu fjórum leikjum í deildinni.

Hvað fannst Viktori um leikinn?

„Hann var erfiður vægast sagt, ég er alveg gjörsamlega sigraður. Þetta var einhver pressugeðveiki. Við vorum alla veganna að reyna það að setja þá ( Valur ) undir pressu. Gékk brösulega fyrstu 15 mínúturnar þar sem við vorum að telja vitlaust og reyna að finna út úr þessu. Eftir það vorum við mjög solid og ég man ekki eftir færi nema kannski einn skalli undir lokin."
Lestu um leikinn: ÍA 1 - 0 Valur
Sóknarleikur gestanna var heldur bitlaus í þessum leik og voru Valsmenn ekki líklegir til að jafna leikinn. Ef eitthvað var voru Skagamenn líklegri til að bæta við.

„Ekki spurning við komumst í helling af mjög góðum stöðum og áttum einhver skot að marki. Ég tvö skot með vinstri sem ég skýt bara beint á Frederik og við hefðum hæglega getað bætt við mörkum en þetta var bara mjög flott frammistaða í dag."

ÍA átti 15 skot í leiknum og 6 þeirra hittu á rammann á meðan Valur átti einungis 8 skot og bara eitt á markið sem lýsir þessum leik nokkuð vel.

Hvað finnst Viktori um þá hugmynd að Tryggvi Hrafn Haraldsson snúi aftur í uppeldisfélagið sitt þegar samningurinn hans rennur út eftir tímabilið?

„Bara frábært, ég held að ég hafi nefnt það í öllum viðtölum sem ég hef farið í og fengið þessa spurningu að það væri einn leikmaður sem ég myndi taka úr öðru liði þá væri það Tryggvi."

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.