Fotbolti.net
17.06.26 - 00:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

HM: Haaland sá um spræka Íraka

Erling Haaland.

Erling Haaland.

Canon

Mynd: EPA

Írak 1 - 4 Noregur
0-1 Erling Haaland ('29 )
1-1 Aymen Hussein (39 )
1-2 Erling Haaland ('43 )
1-3 Leo Östigard ('76 )
1-4 Sjálfsmark ('90 )
Noregur spilaði í kvöld sinn fyrsta leik á stórmóti í 26 ár þegar þeir mættu Írak í sínum fyrsta leik á HM í Bandaríkjnum, Kanada og Mexíkó.

Fyrirfram var búist við frekar þægilegum sigri Norðmanna en annað kom á daginn.

Erling Haaland, sú mikla markamaskína, gerði sitt fyrsta mark á stórmóti þegar hann skoraði eftir tæplega hálftíma leik. En Írakarnir voru flottir í þessum leik og þeir jöfnuðu tíu mínútum síðar er Aymen Hussein skoraði með frábærum skalla.

Hussein skoraði markið sem kom Írak á HM og gerði svo fyrsta mark liðsins á þessu heimsmeistaramóti. Hann hefur gengið í gegnum mikið á lífsleiðinni og fagnaði þessu marki af miklum krafti.

En staðan var ekki lengi jöfn því Haaland fékk annað mark á silfurfati fyrir hlé. Varnarmaður Íraks átti slaka sendingu til baka, Haaland pressaði og uppskar mark.

Írakarnir voru nálægt því að jafna fyrir leikhlé og hefðu bara átt að gera það, færið var frábært. Norðmönnum leið aldrei vel í stöðunni 1-2 en þeir gátu andað léttar þegar varnarmaðurinn Leo Östigard skoraði eftir horn þegar stundarfjórðungur var eftir. Svo fengu þeir norsku bónusmark í blálokin, lokatölur 1-4.

Írakarnir voru sprækir, en það var ekki nóg gegn Haaland og félögum. Fyrr í kvöld unnu Frakkar 3-1 sigur á Senegal í þessum riðli. Það verður mjög áhugavert að sjá hvernig riðillinn spilast í framhaldinu en Noregur er á toppnum eftir leikdag eitt.

HM: Frakkar vöknuðu af værum blundi
TENGT EFNI

HM: Frakkar vöknuðu af værum blundi

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Aymen Hussein skoraði markið fyrir Írak.

Aymen Hussein skoraði markið fyrir Írak.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.