Fotbolti.net
17.06.26 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

5. deild: Túfa blæs lífi í Harðarmenn

Vladimir Tufegdzic.

Vladimir Tufegdzic.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hörður Í. 5 - 4 Uppsveitir
1-0 Gautur Óli Gíslason ('11 )
2-0 Emil Leó Jónþórsson ('21 )
3-0 Baltasar Goði Hafberg Hlynsson ('45 )
3-1 Pétur Geir Ómarsson ('55 )
4-1 Hermann Alexander Hákonarson ('65 )
5-1 Kistján Hrafn Kristjánsson ('68 )
5-2 Pétur Geir Ómarsson ('76 )
5-3 Auðunn Ingi Hafsteinsson ('79 )
5-4 Pétur Geir Ómarsson (90, víti )
Rautt spjald: Þorsteinn Bergmann Heiðarsson, Uppsveitir ('88 )
Það er óhætt að segja að Hörður frá Ísafirði fari vel af stað undir stjórn Vladimir Tufegdzic.

Túfa, eins og hann er kallaður, tók við liðinu í byrjun mánaðar. Túfa flutti á Ísafjörð fyrir sex árum og lék yfir 100 leiki fyrir Vestra. Hann var mikilvægur hlekkur í liðinu sem kom Vestra upp í efstu deild og vann svo Mjólkurbikarinn í fyrra.

Túfa er einnig að spila með liðinu sem var án stiga þegar hann tók við. Harðarmenn hafa hins vegar unnið núna tvo í röð en þeir fóru með sigur af hólmi gegn Uppsveitum í gær, 5-4. Uppsveitir voru með níu stig úr fjórum leikinn fyrir gærdaginn og því var þetta sterkur sigur hjá Harðarmönnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.