Fotbolti.net
16.06.26 - 22:23
Ívar Björgvinsson

Ólafur Ingi: Ég held mögulega að það sé þetta mannlega eðli

Auglýsing
Ólafur Ingi: Ég held mögulega að það sé þetta mannlega eðli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan og Breiðablik mættust í kvöld í ótrúlegum 4-4 fótboltaleik á Samsungvellinum í 10. umferð Bestu deildar karla. Fótbolti.net var á staðnum og tók viðtal við Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Breiðabliks, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 4 Breiðablik

„Þetta er bara mjög svekkjandi, við byrjum frábærlega og erum bara með þennan leik frá A til Ö. Svo verður það svolítið að við förum að slaka á og förum að fara hægar í pressu og gefa þeim meiri tíma á boltann. Við vissum það að það eru mikil gæði í þessu Stjörnuliði og um leið og þú gerir það þá ertu að bjóða hættunni heim.''

Hvað veldur því að Blikar detti niður eftir frábæra byrjun í leiknum að mati Óla?

„Ég held mögulega að það sé þetta mannlega eðli að aðeins fara að spara kraftana og þetta er, að mönnum þykir, þægileg 3-0 staða og menn fara að stytta sér leiðir. Því miður þá beit það okkur í rassgatið í dag.''

Arnar Bjarki Gunnleifsson kemur inn á í dag en mikið hefur verið rætt um mögulega sölu á honum erlendis, hvað getur Óli sagt um það?

„Það er ekkert staðfest, ekki að því sem ég veit allavega. Hann verður bara með okkur út tímabilið og svo verður það bara skoðað. En það hafa verið lið að spyrjast fyrir um hann.''

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.