Fotbolti.net
17.06.26 - 06:21
Elvar Geir Magnússon

HM: Sjálfsmark og víti þegar Jórdanía tapaði í sínum fyrsta HM leik

Marko Arnautovic í leiknum.

Marko Arnautovic í leiknum.

Canon

Mynd: EPA

Austurríki 3 - 1 Jórdanía
1-0 Romano Schmid ('21)
1-1 Ali Olwan ('50)
2-1 Sjálfsmark - Yazan Al Arab ('76)
3-1 Marko Arnautovic (víti '90+)
Austurríki fór upp að hlið heimsmeistara Argentínu í J-riðli með því að vinna 2-1 sigur á Jórdaníu í fyrstu umferð HM. Þetta var fyrsti HM leikur Jórdana í sögunni og fyrsti HM leikur Austurríkis eftir 28 ára bið.

Rétt fyrir fyrri vatnspásuna í fyrri hálfleik skoraði Romano Schmid algjörlega frábært mark fyrir Austurríki þegar hann smellti óverjandi skoti rétt fyrir utan D-bogann. Fimmta landsliðsmark Shcmid en hann spilar fyrir þýska félagið Werder Bremen.

Ali Olwan jafnaði á 50. mínútu með glæsilegri afgreiðslu úr teignum sem fór í stöngina og inn. Sögulegt mark fyrir þjóð hans, fyrsta mark Jórdana á heimsmeistaramóti. Ekki óverðskuldað jöfnunarmark.

Yazan Al Arab varð fyrir því óláni að fá boltann í hnakkann og inn í eigið mark á 76. mínútu eftir hornspyrnu og aftur tók Austurríki forystuna. Marcel Sabitzer hafði tekið hornið.

Seint í uppbótartíma leiksins kom svo síðasta markið. Marko Arnautovic, markahæsti leikmaður austurríska landsliðsins frá upphafi, skoraði af vítapunktinum eftir að hendi var dæmd í teignum að lokinni VAR skoðun. Arnautovic, sem er í dag hjá Rauðu stjörnunni í Serbíu, kom af bekknum í leiknum.

Austurríki vann 3-1 sigur, sinn fyrsta sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990, en hann var ekki eins þægilegur og tölurnar gefa til kynna. Þegar staðan var jöfn í kringum 70. mínútu voru Jórdanar allt eins líklegir og þeir geta að mörgu leyti borið höfuðið hátt. Austurríkismenn verða að gera betur ef þeir ætla að fá eitthvað út úr viðureign sinni gegn Lionel Messi og félögum.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Ali Olwan, sem spilar í Katar, skoraði sögulegt mark fyrir Jórdaníu.

Ali Olwan, sem spilar í Katar, skoraði sögulegt mark fyrir Jórdaníu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.