Nauðsynlegt að framlengja við eftirsóttan Tuchel

Thomas Tuchel.

Mynd: EPA

Frá æfingu enska landsliðsins.

Mynd: EPA

Thomas Tuchel.

Mynd: EPA
Mark Bullingham, framkvæmdastjóri enska fótboltasambandsins, segir að ákvörðunin um að framlengja samning Thomas Tuchel, landsliðsþjálfara Englands, fyrir HM hafi verið tekin til að koma í veg fyrir að stór evrópsk félagslið freistuðu þess að ráða Þjóðverjann.
Tuchel skrifaði undir nýjan samning í febrúar sem gildir til loka Evrópumótsins árið 2028. Samningurinn var undirritaður rúmu ári eftir að hann tók við enska landsliðinu og sex mánuðum áður en fyrri samningur hans átti að renna út.

Bullingham viðurkennir að ákveðin áhætta hafi falist í því að framlengja samninginn áður en Tuchel hefði stýrt liðinu á stórmóti, en telur að meiri áhætta hefði falist í því að bíða.
„Leikmennirnir kunna vel við hann, hann er að vinna frábært starf og allt gengur vel á bak við tjöldin. Það endurspeglast líka inni á vellinum," sagði Bullingham.
Framkvæmdastjórinn segist ekki hafa fengið neinar formlegar fyrirspurnir frá félögum um Tuchel frá því að hann tók við landsliðinu, en hann geri sér þó grein fyrir því að þjálfarinn sé eftirsóttur.
England hefur leik á HM í kvöld með leik gegn Króatíu.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!