Fotbolti.net
16.06.26 - 22:11
Kári Snorrason

Gylfi: Sneggstu samningsviðræður ferilsins

Auglýsing
Gylfi ræðir við Jóhann Inga dómara í kvöld.

Gylfi ræðir við Jóhann Inga dómara í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur er með sex stiga forystu á toppi Bestu deildarinnar eftir að liðið fór með 2-0 sigur af hólmi gegn KR fyrr í kvöld.

Víkingur hefur nú unnið tíu deildarleiki í röð en Fótbolti.net ræddi við Gylfa Þór Sigurðsson, leikmann liðsins, eftir sigur kvöldsins.

„Það var mjög mikilvægt að vinna liðið sem er í 2. sæti fyrir leikinn. En í enda dags eru þetta bara þrjú stig. Þó að við hefðum tapað leiknum eða gert jafntefli að þá er það mikið eftir af tímabilinu að það skiptir kannski ekki öllu máli. Á sama tíma eru þetta mjög góð úrslit.“
Gylfi framlengir í Víkinni - „Akkúrat það sem við viljum frá honum"
TENGT EFNI

Gylfi framlengir í Víkinni - „Akkúrat það sem við viljum frá honum"

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 KR
Fyrr í dag var tilkynnt um að Gylfi hefði framlengt samning sinn við Víking út tímabilið 2028. Hann segir þetta vera sneggstu samningsviðræður ferilsins.

„Mér líður mjög vel hérna, geggjað að vera í þessu liði og gaman að spila fótbolta enn þá. Það tók einhverjar tvær mínútur að endurnýja þennan samning. Þetta voru örugglega sneggstu samningsviðræður sem ég hef átt á ferlinum. Ég er mjög ánægður að vera hérna allavegana eitt ár í viðbót.“
Seinna marki Víkings fagnað.

Seinna marki Víkings fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.