Hemmi eftir leik: Hrikalega illa farið með góðar stöður
Auglýsing

Hermann Hreiðarsson þjálfari Vals að leiðbeina sínum mönnum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verður seint sagt sóknarleikur Vals hér í kvöld hafi verið eftirminnilegur, heldur þvert á móti þá var auglýst eftir honum á mjólkurfernu. Valsmenn áttu einungis eitt skot á mark og voru ekki líklegir til að skora hér í kvöld. ÍA dugði því eitt mark til að fara með sigur af hólmi.
Er Hemmi sammála því að sóknarleikur liðsins hafi ekki verið upp á marga fiska?
„Já en við nýttum stöðurnar hrikalega illa. Við komumst í frábærar stöður og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Fjórum fimm sinnum þrír á tvo, tveir á einn jafnvel en síðasta sending klaufaleg. Þetta var 50-50 leikur og gríðarlega fúlt að fara ekki með neitt."

Lestu um leikinn: ÍA 1 - 0 Valur
Kristófer Dagur Arnarsson sem kom til liðsins fyrir tímabilið frá Fjölni fékk í kvöld sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliðinu. Sá stóð fyrir sínu, var gífurlega vinnusamur og harður í horn að taka. Mætti til leiks og var alls ekki hræddur við augnablikið.
Er Hemmi sáttu við frammistöðu Kristófers Dags?
„Mér fannst hann frábær, barðist eins og ljón og hljóp úr sér lungun. Við fórum með ákveðið marmkið úr hlénu sem var að bæta varnarleikinn fremst á vellinum. Það varð risabæting þar og mikið til honum að þakka."
Ef það á að horfa á jákvæðu hliðar sóknarleik Vals hér í kvöld þá verður helst að nefna þær stóru fréttir að Jónatan Ingi Jónsson var í fyrsta skipti í hóp í deildinni í sumar og kom inn á sem varamaður á 66. mínutu.
Er ekki rosalega stórt að fá Jónatan til baka?
„Já það er risastórt, við vitum það alveg og þetta er einn besti leikmaður deildarinnar og að fá svona fallbyssu til baka og hann komst í gegnum þetta. Það var stórt og vonandi verður framhald að því."
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.