Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
   sun 17. maí 2026 20:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keflavík
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Breki Baxter í leik með Keflavík.
Breki Baxter í leik með Keflavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breki gekk í raðir Keflavíkur í vetur.
Breki gekk í raðir Keflavíkur í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst þetta fínn leikur," sagði Breki Baxter, leikmaður Keflavíkur, eftir 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni í Bestu deildinni í dag.

Breki var að spila gegn sínum gömlu félögum í Stjörnunni en þar eru margir vinir hans.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  1 Stjarnan

„Mér leið vel. Þetta eru allt mjög góðir vinir mínir. Við spiluðum leik við þá á undirbúningstímabilinu og þá fékk maður að mæta þeim sem ekki liðsfélagi. Þú tekur hlutunum aðeins persónulegri (að mæta gömlu félögunum). Jói reynir að fiska mig út af 5-6 sinnum, eða þrisvar kannski. Þetta er bara fótbolti."

Það var ein tækling í seinni hálfleiknum þar sem Breki fer aðeins hátt með fótinn og Jóhann Árni Gunnarsson var ekki sáttur með hann.

„Ég renn smá og þetta lítur geðveikt illa út. Ég sé að Jói horfir á mig og glottir eiginlega. Síðan byrjar hann að öskra og ég hjó eftir því. Hann brosti og byrjaði aftur öskra. Þetta er bara 'bissness' en hann er mjög góður vinur minn og mér þykir mjög vænt um hann."

Fluttur til Keflavíkur og líður vel þar
Breki gekk í raðir Keflavíkur í vetur frá Stjörnunni eftir að hafa leikið vel með ÍBV á láni síðasta sumar. Hann hefur farið vel af stað með Keflavík.

„Þetta er búið að vera mjög fínt. Ég bý hérna núna, er í vinnu og fólkið hefur tekið vel á móti mér. Þetta hefur farið ágætlega af stað, ég hefði viljað vera með 10-13 stig en frammistaðan hefur verið fín og við höldum þessu áfram."

Breki er að koma sér vel fyrir í Keflavík og er að vinna með boltanum, halda sér uppteknum.

„Ég er á sambýli og er líka að vinna í skóla. Maður reynir að vera upptekinn, ég vil vera upptekinn."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner