Fotbolti.net
17.06.06 - 08:02
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Lionel Letizi til Rangers (Staðfest)

Lionel Letizi

Lionel Letizi

Canon

Mynd: Getty Images

Leit Paul Le Guen að nýjum markmanni hjá Rangers er loks á enda eftir að Lionel Letizi gekk til liðs við skoska stórveldið í gærkvöldi.
Le Guen hafði verið á eftir þessum 33. ára gamla Frakka í þó nokkurn tíma og voru Paris St. Germain tilbúnir að leyfa þessum snjalla markverði að fara frá liðinu eftir að Mickael Landreau kom til félagsins.

Letizi skrifaði undir tveggja ára samning mun berjast um sæti í byrjunarliðinu við Stefan Klos sem á þó við meiðsli að stríða og Ronald Waterreus sem gæti verið á leið frá félaginu í sumar.

,,Ég er ánægður með að Lionel gekk til liðs við Rangers og mér hlakkar til að vinna með honum á nýja tímabilinu. Hann er mjög reyndur markvörður sem hlakkar til að fást við nýja áskorun og verður mikill fengur við klúbbinn,” sagði Le Guen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.