Fotbolti.net
17.06.06 - 13:42
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Emana til Portsmouth - Thomert á leiðinni (Staðfest)

Emana mun mæta El Hadji Diouf í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili

Emana mun mæta El Hadji Diouf í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili

Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth gengu í dag frá kaupverði á tveimur leikmönnum úr franska boltanum. Þetta eru þeir Achille Emana og Oliver Thomert og borga þeir samanlagt níu og hálfa milljón punda fyrir þess leikmenn.
Emana, sem er miðjumaður, kemur frá Toulouse og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið með möguleika á öðrum tólf mánuðum. Pompey, sem misstu af Andres D'Alessandro í dag sem fór til Zaragoza, borga 2,7 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Þá hafa Portsmouth einnig komust að samkomulagi við Lens og þurfa að borga 6,8 milljónir punda fyrir hinn 26 ára gamla Oliver Thomert.

Portsmouth vonast til að þessi snjalli sóknarmaður skrifi undir sem fyrst en hann hefur einnig verið orðaður við Atletico Madrid í vikunni. Þá hafa Everton og Tottenham einnig verið orðuð við hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.