17.06.07 - 15:58
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Eugenio Corini til Torino (Staðfest)

Corini í leik með Palermo gegn Juventus á sínum tíma

Mynd: Getty Images

Corini í leik með Palermo gegn Juventus á sínum tíma

Mynd: Getty Images
Hinn 36 ára gamli Eugenio Corini hefur ákveðið að skrifa undir eins árs samning við Torino en hann hefur undanfarin ár verið hjá Palermo.
Palermo neitaði að skrifa undir nýjan samning við miðjumanninn sem skoraði tíu mörk í 27 leikjum á þessu tímabili þrátt fyrir að hafa átt við meiðsli að stríða. Ástæðan er sú að hann talaði við forráðamenn Parma í stað þess að ræða einungis við Palermo.
Corini, sem verður 37 ára gamall í næsta mánuði mun hitta fyrir fyrrum liðsfélaga sinn Simone Barone en hann hefur ekki staðist væntingar hjá félaginu.
Corini hóf ferilinn hjá Brescia árið 1986 og hafði einnig spilað með Juventus, Sampdoria, Napoli, Piacenza, Verona og Chievo áður en hann gekk til liðs við Palermo árið 2003.

Heimild: Channel 4