17.06.21 - 21:20
Victor Pálsson
Ítalía: Emil og félagar fara ekki upp - Töpuðu í vítakeppni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Hallfreðsson og hans félagar í Padova munu ekki leika í ítölsku B-deildinni á næstu leiktíð.
Þetta varð ljóst í kvöld en Padova spilaði við Alessandria í úrslitaleik um að komast í B-deildina.
Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli og var því allt undir fyrir viðureign kvöldsins.
Emil spilaði 110 mínútur fyrir Padova en leikurinn var framlengdur og fór alla leið í vítakeppni.
Þar hafði Alessandria betur 5-4 en Andrea Gasbarro klikkaði á einu spyrnu leiksins fyrir Padova.