Newcastle á eftir Scalvini - Barcelona snýr sér aftur að Díaz - Tottenham vill belgískan miðvörð
   mán 17. júní 2024 11:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tottenham hefur áhuga á bakverði Mónakó
Mynd: EPA

Tottenham er að skoða markaðinn en félagið er með lista yfir hægri bakverði ef Emerson Royal yfirgefur félagið í sumar.


Einn þeirra sem eru á listanum er Vanderson bakvörður Monaco en Fabrizio Romano greinir frá þessu.

Þessi 22 ára gamli Brasilíumaður mun að öllum líkindum yfirgefa Monaco í sumar en hann er spenntastur fyrir AC Milan.

Romano segir að verðmiðinn á Vanderson gæti fælt Tottenham í burtu en Brassinn er metinn á 40 milljónir evra.


Athugasemdir