Fotbolti.net
17.06.25 - 17:20
Ívan Guðjón Baldursson

Como krækir í spennandi króatískan landsliðsmann (Staðfest)

Como krækir í spennandi króatískan landsliðsmann (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Como er að vinna hörðum höndum að því að styrkja leikmannahópinn fyrir komandi átök í ítalska boltanum, eftir að hafa tekist að sannfæra Cesc Fábregas að vera áfram hjá félaginu.
Fábregas er afar eftirsóttur þjálfari en hann verður áfram við stjórnvölinn hjá Como með loforð um góðan liðsstyrk fyrir næstu leiktíð.

Álex Valle er kominn til félagsins frá Barcelona eftir gott gengi á láni hjá Como á síðustu leiktíð og hefur króatíska ungstirnið Martin Baturina bæst við hópinn.

Baturina er 22 ára gamall miðjumaður sem er þegar búinn að spila 12 leiki fyrir sterkt landslið Króatíu. Hann er lykilmaður í liði Dinamo Zagreb og hefur verið orðaður við ýmis stórveldi, en skiptir nú yfir til Como.

Como er talið borga um 17 milljónir evra fyrir, auk árangurstengdra aukagreiðslna og þá heldur Dinamo Zagreb hluta af endursöluvirði leikmannsins.

Como krækir í spennandi króatískan landsliðsmann (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.