Fotbolti.net
17.06.25 - 13:30
Brynjar Ingi Erluson

Filippo Inzaghi tekur við Palermo (Staðfest)

Filippo Inzaghi tekur við Palermo (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ítalska goðsögnin Filippo Inzaghi er tekinn við B-deildarliði Palermo, en þetta er annar Inzaghi-bróðirinn sem færir sig um set í þessum glugga.
Inzaghi var með mikið markanef á fótboltaferli sínum og talinn einn sá besti á tímum þar sem Ítalía framleiddi hvern gæðamikla framherjann á fætur öðrum.

Hann raðaði inn mörkum með Juventus og AC Milan áður en skórnir fóru upp í hillu árið 2012.

Fyrsta þjálfaragigg hans kom með Milan tímabilið 2014-2015 en ákveðið var að slíta samstarfinu ári síðar. Síðan þá hefur hann stýrt Venezia, Bologna, Benevento, Brescia, Reggina, Salernitana og nú síðast Pisa.

Hann kom Pisa upp í Seríu A á síðustu leiktíð sem var í annað sinn sem hann fer með lið upp í efstu deild en hann gerði það sama með Benevento árið 2020.

Inzaghi er nú hættur hjá Pisa og er tekinn við Palermo sem hafnaði í 8. sæti B-deildarinnar á tímabilinu.

Þetta hefur verið viðburðaríkur mánuður hjá Inzaghi-fjölskyldunni en bróðir hans, Simone, hætti með Inter á dögunum og tók við liði Al Hilal í Sádi-Arabíu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.