Wrexham sótti markahæsta leikmann Plymouth (Staðfest)

Ryan Hardie ásamt Guðlaugi Victori Pálssyni

Mynd: Norrköping

Ryan Hardie ásamt Guðlaugi Victori Pálssyni

Mynd: Norrköping
Wrexham, sem er í eigu Hollywood leikarana Ryan Reynolds og Rob McElhenney er byrjað að styrkja sig fyrir baráttuna í Championship deildinni á næstu leiktíð.
Uppgangur liðsins hefur verið magnaður síðan félagarnir keyptu félagið árið 2020 en liðið hefur farið upp um þrjár deildir á þremur árum.
Uppgangur liðsins hefur verið magnaður síðan félagarnir keyptu félagið árið 2020 en liðið hefur farið upp um þrjár deildir á þremur árum.
Félagið hefur nælt í Ryan Hardie sem var markahæsti leikmaður Plymouth þegar liðið féll úr Championship deildinni í fyrra. Hann skoraði 10 mörk fyrir liðið í deildinni.
Hardie er 28 ára gamall en Sky Sport segir að Wrexham hafi borgað um 700 þúsund pund fyrir hann.
Hardie er 28 ára gamall en Sky Sport segir að Wrexham hafi borgað um 700 þúsund pund fyrir hann.



