Fotbolti.net
17.06.26 - 23:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Liverpool að stela spænskum landsliðsmanni frá Newcastle

Liverpool að stela spænskum landsliðsmanni frá Newcastle
Canon

Mynd: EPA

Það er útlit fyrir að Liverpool sé að næla í Victor Munoz, leikmann Osasuna.

Hann var í viðræðum við Newcastle en Fabrizio Romano greinir frá því að Liverpool sé að stela honum fyrir 40 milljónir evra.
The Athletic greinir frá því að Munoz, sem er í spænska HM hópnum, muni gangast undir læknisskoðun í Ameríku áður en hann skrifar undir sex ára samning.

Þetta minnir á síðasta sumar þegar Liverpool vann Newcastle í baráttunni um Hugo Ekitike og keypti síðan Alexander Isak frá Newcastle.

Munoz er 22 ára gamall kantmaður en hann hefur spilað tvo landsleiki fyrir Spán og skorað eitt mark. Hann skoraði sjö mörk og lagði upp fimm í 36 leikjum með Osasuna á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.