Fotbolti.net
17.07.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Markvörðurinn Ricardo til Real Betis (Staðfest)

Ricardo ver vítaspyrnu frá Darius Vassell á EM 2004.

Ricardo ver vítaspyrnu frá Darius Vassell á EM 2004.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Betis hefur keypt portúgalska landsliðsmarkvörðinn Ricardo frá Sporting Lissabon á tvær milljónir punda en þessi 31 árs gamli leikmaður hefur gert fjögurra ára samning við spænska félagið.
Ricardo var hetjan þegar að Portúgalar slógu út Englendinga í vítaspyrnukeppni á EM 2004 og á HM 2006. Árið 2004 skoraði hann í vítaspyrnukeppninni og varði spyrnu hanskalaus.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Real Betis fær í sumar en áður höfðu Mariano Pavone, Mark Gonzalez og Marko Babic komið til félagsins.

Sá fimmti gæti verið á leiðinni því annar markvörður Diego Alves er líklega að koma til Betis frá Atletico Mineiro í Brasilu.

Menn hjá Betis vilja að hann berjist við Ricardo um markvarðarstöðuna en komi Alves er nokkuð ljóst að Pedro Contreras eða Toni Doblas muni yfirgefa félagið.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.