17.07.07 - 14:15
Magnús Már Einarsson
Marlon Harewood til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur keypt framherjann Marlon Harewood frá West Ham fyrir óuppgefna upphæð og hefur þessi 27 ára gamli leikmaður gert þriggja ára samning við Villa.
Harewood sem skoraði 56 mörk í 178 leikjum fyrir West Ham hafði einnig rætt við Wigan en hann ákvað á endanum að fara til Aston Villa.
,,Önnur félög vildu hann en hann er tilbúinn að koma hér og reyna að komast inn í liðið," sagði Martin O´Neill stjóri Aston Villa.
,,Ef hann getur sýnt aftur það sem hann sýndi á tveimur tímabilum fyrir síðasta tímabil verður hann mikill fengur," bætti O´Neill við en Harewood var markahæsti maður West Ham tímabilið 2005/2006 þegar hann gerði sextán mörk.

Heimild: BBC