17.07.07 - 19:35
Magnús Már Einarsson
Geovanni til Manchester City (Staðfest)

Geovanni fagnar marki gegn Manchester United.

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur fengið brasilíska miðjumanninn Geovanni frítt og hefur hann gert eins árs samning við félagið eftir að hafa leikið síðast með Cruzeiro í heimalandinu.
Þessi 27 ára gamli leikmaður sem á fjóra landsleiki að baki hafði verið á reynslu hjá Portsmouth þar sem hann skoraði meðal annars og lagði upp mark í sigri á Yeovil í æfingaleik. Margir bjuggust við að hann færi til Portsmouth en City náði að semja við kappann.
Geovanni hóf ferilinn hjá Cruzeiro en fór til Barcelona á ellefu milljónir punda árið 2001. Hann var lánaður til Benfica eftir eitt og hálft ár á Nou Camp og síðar seldur til portúgalska félagsins.
Geovanni skoraði sautján mörk í 94 leikjum fyrir Benfica, meðal annars gegn Manchester United í Meistaradeildinni 2005, áður en fór aftur til Cruzeiro fyrir árið síðan.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem Sven-Goran Eriksson fær til Manchester City en áður höfðu þeir Rolando Bianchi og Gelson Fernandes komið til félagsins í sumar.

Heimild: BBC