Fotbolti.net
17.08.05 - 08:41
Hafliði Breiðfjörð

Hussein til Manchester City (Staðfest)

Stuart Perace í Víkinni í sumar

Stuart Perace í Víkinni í sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Manchester City sömdu í gær við Yasser Hussein miðvallarleikmann frá Qatar en samningurinn var stuttur, til aðeins sex mánaða. Hussein er 23 ára gamall og hefur leikið í deildinni heima í Qatar þar sem Ali Bernabia fyrrum leikmaður City sá til hans og benti Manchester liðinu á hann.
Hussein lék tvo æfingaleiki með City og það hefur nú skilað honum samning hjá félaginu.

,,Hann vill sýna hvað hann getur gert, hann hefur gert nóg til að gefa til kynna að það sé þess virði að skoða hann. Með lengt samningsins er þetta engin áhætta fyrir okkur," sagði Stuart Pearce stjóri City við vefsíðu félagsins.

Hussein hefur fengið atvinnuleyfi og mun nú byrja að æfa með City þó komu hans gæti seinkað þar sem eiginkona hans er að fara að eiga þeirra fyrsta barn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.