Fotbolti.net
17.08.05 - 11:42
Magnús Már Einarsson

Bellion lánaður til West Ham (Staðfest)

Bellion lánaður til West Ham (Staðfest)
Canon
West Ham hefur fengið David Bellion að láni frá Manchester United út þetta tímabil. Þessi 22 ára franski sóknarmaður hefur ekki leikið með aðalliði Manchester United síðan í janúar og hann skortir því leikæfingur.
Alan Pardew stjóri West Ham hefur veri að leita að framherja eftir að hann missti af Milan Baros hjá Liverpool og Emmanuel Adeybayor hjá Monaco.

Bellion kom til United frá Sunderland á tvær milljónir punda árið 2003 og hefur hann alls skorað 9 mörk í 40 leikjum fyrir United. Þessi fyrrum U-21 árs landsliðsmaður Frakka kom til Sunderland frá Cannes árið 2002 en hann mun nú styrkja sóknarlínu West Ham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.