Fotbolti.net
17.08.05 - 12:38
Magnús Már Einarsson

Kanoute til Sevilla (Staðfest)

Kanoute til Sevilla (Staðfest)
Canon
Sevilla hefur keypt sóknarmanninn Fredi Kanoute frá Tottenham á 4,4 milljónir punda. Kanoute sem er frá Malí hefur gert fjögurra ára samning við spænska liðið.
Sevilla hafði sagt í gær að liðið ætlaði ekki að fá fleiri leikmenn eftir að Javier Saviola gekk til liðs við liðið á láni frá Barcelona. Það hefur hinsvegar breyst og Kanoute og Saviola munu væntanlega skipa saman framlínu Sevilla í vetur og munu reyna að fylla skarðið sem Julio Baptista skildi eftir sig þegar hann fór til Real Madrid.

Kanoute sem er 28 ára hefur sagt að Tottenham hafi verið að reyna að láta sig fara en West Ham og Newcastle voru meðal annars orðuð við þennan fyrrum leikmann Lyon í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.