17.08.05 - 12:48
Magnús Már Einarsson
Abbiati lánaður frá AC til Juventus (Staðfest)




Juventus hefur fengið markvörðinn Christian Abbiati að láni frá AC Milan út þessa leiktíð. Abbiati sem er 28 ára á að koma í stað Gianluigi Buffon sem verður ekki með fyrstu þrjá mánuði tímabilsins vegna meiðsla.
Abbiati átti að fara til Genoa á láni en liðið var dæmt niður í Serie C1 eftir að hafa hagrætt úrslitum og því varð ekkert af því að hann færi til Genoa.
Abbiati hefur verið varaskeifa fyrir Dida undanfarin ár en nú hefur Milan fengið markmennina Zeljko Kalac og Dimitrios Eleftheropoulos til að verma bekkinn hjá liðinu.
Abbiati hefur verið varaskeifa fyrir Dida undanfarin ár en nú hefur Milan fengið markmennina Zeljko Kalac og Dimitrios Eleftheropoulos til að verma bekkinn hjá liðinu.
