Fotbolti.net
17.08.05 - 17:07
Hörður Snævar Jónsson

Johnson aftur til Derby (Staðfest)

Johnson í leik með Leeds

Johnson í leik með Leeds

Canon
Seth Johnson fyrrum leikmaður Leeds hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Derby County. Johnson sem er 26 ára gerði eins árs samning við Derby eftir að hafa sannað sig fyrir Phil Brown þjálfara liðsins meðan hann var á reynslu hjá liðinu.
Johnson gekk til liðs við Derby frá Crewe Alexandra í maí árið 1999 fyrir þrjár milljónir punda en hann fór svo til Leeds fyrir 7 milljónir í október 2001.

Johnson yfirgaf Leeds á dögunum eftir að hafa átt í langþráðum hnémeiðslum og nú er hann kominn aftur til Derby.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.