Fotbolti.net
17.08.13 - 19:22
Magnús Már Einarsson

Aron Bjarnason: Ólýsanleg tilfinning

Auglýsing
Aron Bjarnason: Ólýsanleg tilfinning
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borgun
,,Þetta er ólýsanleg tilfinning,\" sagði Aron Bjarnason eftir sigur Fram á Stjörnunni í úrslitum Borgunarbikarsins í dag.

Aron kom til Fram í lok júlí eftir að hafa verið á bekknum hjá Þrótturum.

,,Ég sá þetta ekki fyrir, fyrir mánuði síðan. Ég gat ekki ímyndað mér þetta.\"

Aron kom inn á sem varamaður eftir tæpan klukkutíma og átti fína spretti í úrslitaleiknum.

,,Ég bjóst ekki við að fá svona mikinn tíma. Ég hefði viljað gera færri mistök en ég átti ágætis skot og er ánægður með þetta.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.