Fotbolti.net
23.10.26 - 13:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Leikurinn fer ekki fram á vellinum ef hann er hættulegur"

Kaplakrikavöllur.

Kaplakrikavöllur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á morgun tekur FH á móti Þór á Kaplakrikavelli. Gras er á Kaplakrikavelli og spáð er frosti, alveg niður í mínus þrjár gráður (skv. yr.no), í Hafnarfirði í kvöld og fram á nótt. Þegar leikurinn hefst, klukkan 14:00, á að vera tveggja til þriggja stiga hiti.

„Eins og staðan er núna er völlurinn leikfær og við gerum ráð fyrir því að hann verði það," segir Birkir Sveinsson sem er mótastjóri KSÍ.
Frost í kortunum og FH með varaáætlun
TENGT EFNI

Frost í kortunum og FH með varaáætlun

„FH er með varaplan en hvenær eða hvort það verði virkjað á eftir að ræða betur," segir mótastjórinn og segir að KSÍ hafi rætt við FH í dag og síðustu daga um stöðuna. Það er ekki hiti undir Kaplakrikavelli og því hefur lofthiti talsvert að segja.

Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net er varaplan FH-inga að leikurinn fari fram á Þróttarvelli í Laugardal.

„Leikurinn fer ekki fram á vellinum ef hann er hættulegur. FH-ingar eru bjartsýnir og við vallarskoðun í gær var völlurinn leikfær."

Er einhver sviðsmynd þar sem ákveðið verði 90 mínútum fyrir leik að breyta þurfi leikstað?

„Ég get eiginlega ekki sagt til um það akkúrat núna. Vonandi kemur ekki til þess," segir Birkir.
Birkir Sveinsson.

Birkir Sveinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.