23.10.26 - 14:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Caroline tekur við U19 landsliði Íslands (Staðfest)

Caroline VanSlambrouck.

Mynd: KSÍ

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Caroline VanSlambrouck.

Mynd: KSÍ

KSÍ hefur gengið frá ráðningu Caroline VanSlambrouck sem aðalþjálfara U19 ára landsliðs kvenna. Samhliða því mun hún gegna hlutverki aðstoðarþjálfara U16 og U17 ára landsliða kvenna.
Hún tekur við starfinu af Halldóri Jóni Sigurðssyni, betur þekktum sem Donna, sem lét af störfum í ágúst síðastliðnum.
Hún tekur við starfinu af Halldóri Jóni Sigurðssyni, betur þekktum sem Donna, sem lét af störfum í ágúst síðastliðnum.
Caroline er með UEFA A-þjálfararéttindi, auk UEFA A Youth-réttinda, og hefur undanfarin ár starfað við þjálfun og þróun ungra leikmanna á Íslandi. Hún hefur meðal annars þjálfað hjá Þrótti R. og Keflavík við góðan orðstír og sinnt sérstaklega tengingu og þróun leikmanna frá yngri flokkum yfir í meistaraflokk. Þá hefur hún komið að verkefnum yngri landsliða KSÍ, meðal annars sem aðstoðarþjálfari U15 ára landsliðs kvenna.
Hún á að baki langan leikmannaferil. Hún lék meðal annars með Houston Dash í Bandaríkjunum, Kungsbacka DFF og Sunnanå SK í Svíþjóð, Benfica í Portúgal og Santa Teresa í efstu deild á Spáni. Á Íslandi lék hún með ÍBV og Keflavík í efstu deild og varð bikarmeistari með ÍBV árið 2017.
„KSÍ býður Caroline VanSlambrouck hjartanlega velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins," segir í tilkynningu úr Laugardalnum.