23.10.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jökull: Búið að taka okkur á teppið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH tekur á móti Þór í lokaumferð Bestu deildarinnar á morgun. FH hefur að litlu að keppa, liðið er öruggt með sæti í deildinni á næsta ári en gæti komist upp um sæti með sigri. Á sama tíma er allt undir hjá Þór sem heldur sæti sínu í deildinni með sigri.
FH mætti ÍBV fyrir viku síðan og þóti frammistaða liðsins ekki merkileg. Leiknum hafði verið flýtt vegna veðurs og hvorugt liðið hafði að miklu að keppa. ÍBV vann 3-1 og spilaði tæplega klukkutíma manni færri.
Jökull Andrésson, markvörður FH, ræddi um þessa leiki í hlaðvarpinu Einn Tveir sem Ásgeir Börkur Ásgeirsson og Albert Brynjar Ingason halda úti.

TENGT EFNI
Treysta á að FH mæti fagmannlega í lokaleikinn
„Ég heyrði í klefanum áðan að það séu rútur af Þórsurum að fara mæta á leikinn. Það er svo miklu skemmtilegra að spila þannig leiki. Ég ætla ekki að ljúga, þessi leikur á móti ÍBV um daginn... úff. Maður labbaði út á völl í 10m/s (vindi) og helmingurinn af ljósunum virkuðu ekki. Leiknum var frestað um tíu mínútur af því að tveir lampar virkuðu ekki. Það voru svona 40 manns í stúkunni."
„Það er búið að taka okkur á teppið fyrir þann leik. Ég held að leikurinn á morgun verður geðveikur. Það er alltaf smá púki í manni, langar alveg að traðka á þessum gæjum (Þórsurum). Það er bara keppnisskapið í manni," segir Jökull sem ætlar ekki að gefa Þórsurum neitt í lokaleiknum.
Jökull hefur átt gott tímabil í marki FH og var í vikunni valinn í lið ársins hér á Fótbolti.net.