Fotbolti.net
17.08.26 - 18:17
Ívan Guðjón Baldursson

Dortmund opnar veskið til að kaupa Konstantelias (Staðfest)

Dortmund opnar veskið til að kaupa Konstantelias (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Þýska stórveldið Borussia Dortmund er búið að ganga frá þriðju kaupum sumarsins.
Átján ára landsliðsmaður Grikklands til Dortmund (Staðfest)
TENGT EFNI

Átján ára landsliðsmaður Grikklands til Dortmund (Staðfest)

Gríski sóknartengiliðurinn Giannis Konstantelias er kominn til félagsins úr röðum PAOK og borga Þjóðverjarnir 26 milljónir evra fyrir. 6 milljónir geta bæst við í árangurstengdar aukagreiðslur og þá heldur PAOK 15% af hagnaðinum sem hlýst af næstu sölu.

Konstantelias er annar Grikkinn sem Dortmund kaupir í sumar eftir að hinn 18 ára gamli Konstantinos Karetsas var fenginn frá Genk.

Konstantelias er 23 ára og gerir fimm ára samning við Dortmund. Hann kom með beinum hætti að 23 mörkum í 40 leikjum á síðustu leiktíð og hefur byrjað nýtt tímabil af miklum krafti, með þrjú mörk og eina stoðsendingu í fjórum leikjum.

Stuttgart var nálægt því að kaupa Konstantelias fyrr í sumar en mikill þrýstingur frá stuðningsmönnum PAOK varð til þess að ekkert varð úr félagaskiptunum. Það var mikill hiti í stuðningsmönnum þegar félagaskiptin til Dortmund voru kynnt og voru nokkrir sem mættu út á flugvöll til að ræða við Konstantelias fyrir brottför, en gríski landsliðsmaðurinn svaraði einfaldlega að þetta væri sín ákvörðun.

Hollendingurinn Joey Veerman er einnig á leið til Dortmund á næstu dögum eftir að félaginu mistókst að kaupa Said El Mala, liðsfélaga Ísaks Bergmanns Jóhannessonar í Köln.

Dortmund opnar veskið til að kaupa Konstantelias (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Dortmund opnar veskið til að kaupa Konstantelias (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.