17.08.26 - 18:36
Ívan Guðjón Baldursson
FCK fær markvörð frá Dortmund (Staðfest)

Mynd: Borussia Dortmund

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Borussia Dortmund
Danska stórveldið FC Kaupmannahöfn var ekki lengi að bregðast við eftir að aðalmarkvörður liðsins meiddist í gær.

TENGT EFNI
Rúnar Alex kom inn af bekknum
Dominik Kotarski meiddist í þægilegum sigri gegn Randers og fékk Rúnar Alex Rúnarsson sjaldgæft tækifæri til að spreyta sig af bekknum.
Rúnar Alex er varamarkvörður Kaupmannahafnar og mun núna berjast við Diant Ramaj um sæti í liðinu. Kotarski meiddist á hné í gær og er óttast að hann verði frá keppni í langan tíma.
Ramaj kemur til FCK á lánssamningi frá Borussia Dortmund og er að spila fyrir Kaupmannahöfn í annað sinn á ferlinum. Hann kom einnig á láni frá Dortmund í fyrra og hafði betur í baráttunni við Rúnar Alex um byrjunarliðssæti.

Guess Who’s Back ????#fcklive pic.twitter.com/crcFwyuJmW
— F.C. København (@FCKobenhavn) August 17, 2026

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir