17.08.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Snúa sér aftur að Curtis Jones

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Inter

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Inter er að undirbúa nýtt kauptilboð fyrir enska miðjumanninn Curtis Jones sem er aðeins með eitt ár eftir af samningi hjá Liverpool.

TENGT EFNI
Liverpool tilbúið að bjóða Jones nýjan samning
Liverpool er talið vera reiðubúið til að samþykkja um 34 milljón punda tilboð, sem samsvarar 40 milljónum evra, fyrir þennan uppalda miðjumann.
Jones er 25 ára gamall og hefur verið efstur á óskalista Inter síðan í janúar.
Leikmaðurinn var fyrir löngu búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir samningi hjá Inter, en Ítalíumeistararnir eiga eftir að ná samkomulagi við Liverpool um kaupverð.
Einhverjir fjölmiðlar segja að Inter ætli að selja Luis Henrique fyrst til að fjármagna kaup á Jones, en Fabrizio Romano segir það ekki vera rétt. Ítalíumeistararnir eru þó taldir vilja lækka verðmiðann um nokkrar milljónir.
Jones yrði fjórði leikmaðurinn sem Inter nælir sér í fyrir aðalliðið í sumar eftir félagaskipti Djed Spence, John Stones og Aleksandar Stankovic.