17.08.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vlahovic kominn til Besiktas (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Besiktas

Mynd: EPA
Serbneski framherjinn Dusan Vlahovic er búinn að skipta yfir í tyrkneska boltann eftir fimm ár hjá Juventus.

TENGT EFNI
Vlahovic á barmi þess að fara til Besiktas
Vlahovic er 28 ára gamall og fer til Besiktas á frjálsri sölu. Hann gerir þriggja ára samning við félagið eftir að hafa skorað 68 mörk í 168 leikjum með Juve.
Hann skoraði 10 mörk og gaf 2 stoðsendingar í 23 leikjum á síðustu leiktíð eftir að hafa verið algjör lykilmaður í liði Fiorentina þar áður.
Vlahovic raðaði inn mörkunum með Fiorentina og borgaði Juventus um 80 milljónir evra til að kaupa hann í sínar raðir í janúar 2022.
Arsenal og fleiri stórveldi höfðu mikinn áhuga á Vlahovic um tíma en hann hefur ekki verið sannfærandi á undanförnum árum. Talið er að spænsku stórveldin Atlético Madrid og Barcelona hafi verið á meðal félaga sem skoðuðu að fá Vlahovic í sumar en voru ekki tilbúin að mæta háum launakröfum.
Besiktas ætlar sér stóra hluti á komandi leiktíð. Félagið var þegar búið að krækja í Alexander Nübel frá FC Bayern og Leandro Trossard frá Arsenal áður en Vlahovic skrifaði undir.

Dusan Vlahovic | ?lk Röportaj ?????
— Be?ikta? JK (@Besiktas) August 15, 2026
Tamam?n? izlemek için ????https://t.co/1DPnWawLPP pic.twitter.com/HCRxYKlW01

Mynd: EPA

Mynd: Besiktas