Hægri bakvörðurinn Nathaniel Clyne æfir þessa dagana með Crystal Palace í von um að fá samning hjá félaginu.
Hinn 29 ára gamli Clyne ólst upp hjá Crystal Palace en hann mun æfa með liðinu næstu tvær vikurnar.
Clyne er félagslaus eftir að samningur hans hjá Liverpool rann út í sumar.
Hinn 29 ára gamli Clyne ólst upp hjá Crystal Palace en hann mun æfa með liðinu næstu tvær vikurnar.
Clyne er félagslaus eftir að samningur hans hjá Liverpool rann út í sumar.
Clyne spilaði síðast með Liverpool í desember 2018 en hann hefur verið mikið meiddur undanfarin ár.
Á ferli sínum hefur Clyne spilað 14 leiki með enska landsliðinu en hann vonast nú til að ná ferli sínum aftur á flug.
Athugasemdir