Fotbolti.net
17.10.07 - 16:15
Hörður Snævar Jónsson

Kristján Hauksson í Val (Staðfest)

Kristján í leik gegn Val í sumar.

Kristján í leik gegn Val í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Varnarmaðurinn Kristján Hauksson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Valsmenn. Kristján er tuttugu og eins árs varnarmaður og þykir með efnilegri leikmönnum deildarinnar. Hann hefur spilað með Fram upp alla yngri flokkana.
Kristján vermdi varamannabekkinn hjá Fram framan af sumri og fékk fá tækifæri þar til Eggert Stefánsson meiddist snemma í júní mánuði og ákvað að leggja skóna á hilluna.

Frá þeim tíma leysti Kristján miðvarðarstöðuna hjá Fram og átti marga frábæra leiki í vörn liðsins og var meðal annar einu sinni valinn leikmaður umferðarinnar á Fótbolta.net.

Hann á að baki 33 leiki í Landsbankadeildinni auk þes sem hann lék 9 leiki með Fram í 1. deildinni í fyrra en meiddist og náði því ekki að klára tímabilið..

Hann hóf feril sinn með meistaraflokki Fram sumarið 2003 en á síðasta sumri var hann valinn efnilegasti leikmaður liðsins hjá Fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.